Lífið

Fann nokkra galla á fullkomnu atriði

Benedikt Bóas skrifar
Max og Jóhanna Guðrún í lok atriðisins á sunnudag.
Max og Jóhanna Guðrún í lok atriðisins á sunnudag.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Max Petrov fengu fullt hús stiga í sjónvarpsþættinum Allir geta dansað á sunnudag og flugu inn í úrslitaþáttinn sem verður á sunnudag. Dansparið fékk þrjár tíur fyrir tangó við lagið The Greatest Show úr myndinni The Greatest Showman.

„Ég er svo mikill fullkomnunarsinni og það er alltaf eitthvað aðeins sem maður sér. Eitt og eitt spor og kannski ein og ein staða,“ segir Jóhanna Guðrún sem enn svífur um á bleiku skýi enda í fyrsta sinn sem danspar fær 30 stig í þættinum. „Ég er í skýjunum með þessa einkunn. Maður gerir þetta til að fá tíu og ég bjóst ekki við að fá þrjár tíur yfirhöfuð en ég er þakklát,“ segir hún.

„Ég er ekki dansari og dansarar æfa sig í mörg ár í grunnsporum en við fáum viku. Að sjálfsögðu veit maður hvernig þetta á að líta út og maður getur alveg gagnrýnt það.“

Jóhanna Guðrún og Max munu dansa sömbu og endurtaka paso doble atriðið í úrslitaþættinum en auk þeirra eru þau Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Javier Fernández Valiño, Bergþór Pálsson og Hanna Rún Óladóttir og Arnar Grant og Lilja Guðmundsdóttir komin alla leið í úrslitin.

„Auðvitað langar mann að enda á toppnum en nú er um að gera að reyna að hafa gaman og gera sitt besta eins og allir hinir keppend urnir. Markmið mitt var að komast í úrslitin og allt annað er bónus. Ég er mjög stolt af sjálfri mér, að vera komin svona langt,“ segir hún.

Unnusti Jóhönnu, Davíð Sigurgeirsson, er einn af efnilegri kórstjórum landsins og ákaflega fimur gítarleikari. Hún segir að þættirnir taki mikinn tíma og séu nánast búnir að gleypa allan hennar tíma. Það er því meira álag á Davíð þessa stundina.

„Hann er búinn að vera sveittur hérna heima við,“ segir hún og hlær en saman eiga þau dótturina Margréti Lilju.

„Það er búið að vera gaman að ögra sjálfum sér og finna að maður geti gert miklu meira en maður heldur. Þetta er búið að vera lærdómsríkt ferli og maður fær fullt af góðri reynslu úr þessu. Það er líka gaman að sjá hina keppendurna framkvæma alla þessa hluti, Arnar Grant með allar þessar lyftur með Lilju, Ebba er að blómstra og Bergþór er auðvitað hæfileikabúnt. Það er búið að vera ótrúlega gaman að sjá hvernig fólk hefur sprungið út.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.