Lífið

Simmi um kjaftasöguna: „Konan mín átti að hafa komið að mér með manni“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigmar Vilhjálmsson er þekktur viðskiptamaður hér á landi.
Sigmar Vilhjálmsson er þekktur viðskiptamaður hér á landi. Vísir/anton
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson var í viðtali í Brennslunni í morgun og tjáði hann sig þar um kjaftasögur sem hafa verið að gang um hans einkalíf. Hann hefði ítrekað heyrt þá sögu um sig að hann væri samkynhneigður.

„Ert þú að fara spyrja mig um hommasöguna?,“ sagði Simmi við Hjörvar Hafliðason í morgun.

„Ég er búinn að heyra þessa sögu margoft. Erum við að fara ræða hana hérna? Djöfull ert þú leiðinlegur maður,“ segir Sigmar.

„Ég heyrði þetta fyrst í haust. Svo er ég bara búinn að heyra þetta aftur og aftur. Það sem gerðist í síðustu viku, þá hringir frænka mín í bróðir minn til þess að spyrja hvort þetta geti staðist. Hún er að vinna hjá KPMG sem þýðir að þetta er komið í kaffistofuna þar. Ekki bara á einhverri hárgreiðslustofu út í bæ. Það fyrsta sem ég hugsaði er að af hverju enginn af mínum samkynhneigðu vinum væru búnir að reyna við mig.“

Sigmar segist ekki hafa nokkurn skapaðan hlut á móti samkynhneigðum.

„Og ef ég væri samkynhneigður þá myndi ég nú bara segja öllum frá því. Við erum sex bræðurnir og tölfræðin er kannski ekki með okkur. Einn af okkur ætti nú að vera með einhverjar hneigðir. Sagan varð alltaf verri og verri. Konan mín átti að hafa komið að mér með manni. Svo var hann allt í einu orðinn tvítugur.“

Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.