Lykilmenn hvíldir þegar Real Madrid lagði Leganes

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Gareth Bale fékk tækifæri í dag og nýtti það
Gareth Bale fékk tækifæri í dag og nýtti það vísir/getty
Real Madrid styrkti stöðu sína í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið bar sigurorð af Leganes, 2-1, á Santiago Bernabeu í dag.

Leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Sergio Ramos, Luka Modric, Marcelo og Keylor Navas voru hvíldir í dag. 

Gareth Bale fékk hins vegar tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það vel; kom Madridingum yfir á 8.mínútu. Borja Mayoral tvöfaldaði forystuna á lokamínútu fyrri hálfleiks. Gestirnir gáfust ekki auðveldlega upp og Darko Brasanac minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma leik.

Nær komust þeir þó ekki og lokatölur 2-1 fyrir Real Madrid.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira