Lífið

Jimmy Fallon agndofa yfir myndum frá Íslandsferð Joe Manganiello

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jimmy Fallon var agndofa yfir hasarnum í Íslandsferð leikarans Joe Manganiello.
Jimmy Fallon var agndofa yfir hasarnum í Íslandsferð leikarans Joe Manganiello. Vísir/Skjáskot
Bandaríski leikarinn Joe Manganiello, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem varúlfurinn Alcide Herveaux í sjónvarpsþáttunum True Blood, fór fögrum orðum um Ísland í spjallþættinum The Tonight Show í vikunni.

Sjá einnig: Íslandsferð varúlfsins „ótrúlegasta ævintýri lífsins“

Manganiello, sem heimsótti Ísland í fyrra eins og frægt er orðið, hafði meðferðis ljósmyndir sem teknar voru af dvölinni. Jimmy Fallon, stjórnandi þáttarins, var agndofa yfir myndunum „Varstu á Mars? Er þetta húsið hans Elons Musks?“ spurði Fallon þegar leikarinn geðþekki sýndi honum mynd af sér að hjóla í mosagrónu hrauni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Manganiello ræðir Íslandsferðina en stuttu eftir heimkomu í fyrra lýsti hann henni sem „ótrúlegasta ævintýri lífsins.“ Hann virtist enn á sama máli í settinu hjá Fallon.

„Ég varð í raun sex dögum utandyra,“ sagði Manganielloum ferðina. „Við sváfum í hellum. Ef þú þurftir að fara á klósettið klukkan fjögur að morgni þá varðstu að þramma í gegnum blindbyl og út í dal til að ljúka þér af.“

Þá ræddi hann líka kjakasiglingu við rætur „stærsta jökuls í Evrópu,“ og ísklifur inni í téðum jökli, sem hann lýsti sem háskaleik. Fallon þótti greinilega mikið til koma og sagði slíka ferð myndu breyta lífi sínu til frambúðar.

Viðtal Fallon við Manganiello má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Íslandsferð varúlfsins „ótrúlegasta ævintýri lífsins“

Bandaríski leikarinn Joe Manganello, sem frægastur er fyrir hlutverk sitt sem varúlfurinn Alcide Herveaux í sjónvarpsþáttunum True Blood, var staddur á Íslandi á dögunum. Hann virðist hafa orðið algjörlega heillaður af Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.