Lífið

Sjáðu Jón Arnar dansa vals við Hrefnu með slitinn kálfa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón og Hrefna fengu 15 stig fyrir dansinn.
Jón og Hrefna fengu 15 stig fyrir dansinn.
Dansparið Jón Arnar Magnússon og Hrefna Dís Halldórsdóttir féllu úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað á Stöð 2 í gærkvöldi.

Jón og Hrefna dönsuðu vals undir laginu Open arms með Journey. Dómararnir gáfu þeim alls 15 stig sem var það lægsta í gærkvöldi.

Í þáttunum Allir geta dansað keppa þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir dansa við fagdansara og stendur eitt par uppi sem sigurvegari.

Í gærkvöldi komu sjö danspör fram og þóttu þau öll standa sig nokkuð vel. Hér að neðan má sjá dansinn sem var Jóni og Hrefnu að falli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.