Bayern með sigur á Spáni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Bayern er með stórkostlegt lið.
Bayern er með stórkostlegt lið. vísir/getty
Bayern München þurfti að hafa fyrir sigrinum þegar liðið mætti til Sevilla í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Sevilla náði forystunni með marki frá Pablo Sarabia á 32. mínútu. Markið kom rétt eftir að Sarabia hafði farið illa með dauðafæri.

Þýsku meistaraefnin komu þó til baka stuttu seinna þegar markvörðurinn Jesus Navas skoraði sjálfsmark eftir fyrirgjöf Frank Ribery. Frakkinn var svo aftur á ferðinni í seinni hálfleik þegar hann lagði upp sigurmarkið fyrir Thiago Alcantara.

Bayern er því í fínni stöðu fyrir seinni leikinn í Þýskalandi með forystu og tvö mörk á útivelli, en liðið varð þó fyrir því óláni að Arturo Vidal meiddist í leiknum í kvöld og varð að fara af velli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira