Þessir 10 komast 300.000 kílómetra Finnur Thorlacius skrifar 5. apríl 2018 06:00 Þegar bílar eru annars vegar er rétt að vanda valið.
Þegar keyptur er bíll vonast eigendur gjarnan til þess að hann eigi langt líf fyrir höndum, bili lítið og komist sem flesta ekna kílómetra á sínum líftíma. Því er ef til vill gáfulegt að skoða hvaða bílar það eru helst sem uppfylla þessi skilyrði. Consumer Reports í Bandaríkjunum heldur utan um ógrynni upplýsinga um bíla í því landi og hefur birt lista yfir þá 10 bíla sem búast má við að komist flesta ekna kílómetra á líftíma sínum og ættu hæglega að komast 300.000 kílómetra. Þessir 10 bílar eru eftirfarandi og sá sem skoraði hæst er Toyota Camry: 1. Toyota Camry 2. Honda Accord 3. Toyota Prius 4. Honda CR-V 5. Toyota Sienna 6. Honda Civic 7. Toyota Corolla 8. Toyota 4Runner 9. Toyota Highlander 10. Ford F-150 Ekki kemur það á óvart að japanskir bílar skori vel en að 6 Toyota-bílar og 3 Honda-bílar svo til fylli listann vekur hins vegar nokkra athygli og sýnir hversu mikla gæðabíla þessir tveir framleiðendur smíða. Rétt er þó að horfa til þess að þessi listi er frá Bandaríkjunum og þar í landi er öðruvísi samsetning bíla en t.d. í Evrópu og Toyota- og Honda-merkin eru mjög sterk þar. Einn bandarískur bíll nær á þennan lista, en það er Ford F-150, sem er langsöluhæsta einstaka bílgerð í Bandaríkjunum og seldist í um 800.000 eintökum á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Consumer Reports eru fleiri bílar en ofantaldir sem búast má við að komist 300.000 kílómetra, en á leið þangað hafa þeir þurft á svo miklu viðhaldi og viðgerðum að halda að þeir ná ekki á þennan eftirsótta lista.
Bílar Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Fleiri fréttir Banninu verður ekki flýtt „Óframkvæmanlegt“ að flýta útfösun bensín- og dísilbíla Rúntað um Reykjavík í Tesla Cybertruck Sjá meira