Lífið

Berg­þór fór á kostum og Hug­rún sló Daða Frey í Glimmer­her­berginu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það gerist margt í Glimmerherberginu.
Það gerist margt í Glimmerherberginu.
Dansparið Sölvi Tryggvason og Ástrós Traustadóttir féllu úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað á Stöð 2 í gærkvöldi.

Í þáttunum Allir geta dansað keppa þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir dansa við fagdansara og stendur eitt par uppi sem sigurvegari. Í gærkvöldi komu átta danspör fram og þóttu þau öll standa sig nokkuð vel.

Þættirnir eru ávallt í beinni útsendingu og þegar pörin hafa stígið á svið mæta þau í svokallað Glimmerherbergi baksviðs. Þar fara þau í viðtal sem sjá má á Instagram-síðu Stöðvar 2. Viðtölin eru sýnd síðar í þáttaröðinni.

Margt skemmtilegt gerist baksviðs í Allir geta dansað og má til að mynda nefna spaugilegt atvik þegar Hugrún Halldórsdóttir sló óvart Daða Frey í andlitið. Einnig má nefna skemmtilegt atvik þegar Bergþór Pálsson sýndi hvað hann lagði á sig fyrir atriðið með Hönnu Rún í gærkvöldi.

Hér að neðan má sjá öll viðtölin úr Glimmerherberginu frá því í gærkvöldi.

900 9001

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9002

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9003

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9004

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9005

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9006

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9007

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on

900 9008

A post shared by Stöð 2 (@stodtvo) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.