Lexus UX prýddi pallana í Genf Finnur Thorlacius skrifar 8. mars 2018 09:00 Lexus kynnti glænýjan smáan UX borgarjeppling sem ekki verður löng bið eftir.
Fréttablaðið brá sér á bílasýninguna sem nú stendur yfir í Genf og á fyrsta degi hennar á þriðjudaginn var mikið um dýrðir og kynningar á glænýjum bílum. Ein fyrsta kynningin var snemma dags þar sem Lexus kynnti nýjan og snaggaralegan jeppling í Compact Crossover flokki og mun hann bera nafnið Lexus UX. Vakti bíllinn eðlilega mikla athygli og dró að sér mikinn fjölda sýningargesta. Þarna fer minnsti bíllinn í jeppa/jepplingaflokki Lexus en fyrir eru bílarnir RX og NX og nafnið UX því í rökréttu framhaldi en U í UX stendur fyrir Urban því hér fer sannkallaður borgarjepplingur sem er af smærri gerðinni. Hann er meira að segja 13 cm styttri en Toyota Corolla, eða 4,5 metrar og því ætti að vera auðvelt að finna honum stæði í þröngri borgarumferð.Mun öflugri en Toyota CH-R Bíllinn er, eins og eðlilegt má teljast með Lexus bíla, stórglæsilegur að innan og hinn vandaðasti í alla staði. Hann mun bjóðast bæði sem Hybrid-bíll og án Hybrid-aðstoðar og báðar gerðir verða með nýrri 2,0 lítra bensínvél og heita þessar gerðir UX 250h og UX 200. Þessi 2,0 lítra vél er 168 hestöfl og því 24 hestöflum öflugri en vélin í Toyota CH-R sem er ámóta stór borgarjepplingur úr smiðju systurmerkisins. Með Hybrid-kerfinu er bíllinn 176 hestöfl og þar sem rafmótorinn er að aftan er bíllinn fyrir vikið fjórhjóladrifinn þegar nægt afl er á rafhlöðunum. Lexus UX er með lægsta þyngdarpunktinn í sínum flokki bíla í heiminum og mikla stífni í undirvagni og yfirbyggingu. Hann á að vera með aksturseiginleika á við fólksbíl. Lexus UX á að koma á markað í haust í Bandaríkjunum og vonandi einnig hér á landi.Ógnarfallegur LF-1 Limitless Concept tilraunabíll Lexus kynnti ekki bara nýjan UX heldur hrikalega fallegan tilraunabíl, LF-1 Limitless Concept, á pöllunum í Genf. Þarna er kominn háfættur og stór, en umfram allt áberandi fallegur bíll sem ætti ekki að hræðast torfærurnar. Þessi bíll fer vonandi í framleiðslu hjá Lexus sem fyrst, þótt ekki sé hægt að slá því föstu. Hann yrði þá fjórði bíllinn í framleiðslulínu Lexus sem ekki telst fólksbíll og líklegast sá allra glæsilegasti. Þessi þróun kæmi ekki mikið á óvart í ljósi þess að flestir bílaframleiðendur eru að fjölga mjög í jeppa/jepplingaflokki á kostnað fólksbíla, enda eftirspurnin mest þar. Lexus kynnti einnig lengri gerð RX jeppans sem fær stafinn L í endann, enda bíllinn 11 cm lengri og með þrjár sætaraðir. RX 450hL verður enginn letingi með sína 313 hestafla drifrás, en þessi bíll verður bæði markaðssettur í Bandaríkjunum og Evrópu á næstunni.
Birtist í Fréttablaðinu Bílar Mest lesið „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Innlent Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Erlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Erlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Veður Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Erlent