Pétur Guðmunds og Kareem Abdul-Jabbar hittust á Stjörnuhelginni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2018 22:30 Pétur Guðmundsson ræðir við Kareem Abdul-Jabbar. Ágúst Björgvinsson
Pétur Guðmundsson er eini íslenski körfuboltamaðurinn sem hefur spilað í NBA-deildinni í körfubolta. Hann var eins og fleiri gamlir NBA-leikmenn meðal gesta á Stjörnuhelgi NBA sem fram fór í Los Angeles um helgina. Gömlu goðsagnirnar hittust meðal annars í matarboði á vegum NBA-deildarinnar og þar mætti Pétur og hitti nokkra af gömlu liðsfélögum sínum en Pétur spilaði með Portland Trail Blazers, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs á árunum 1981 til 1989. Pétur hitti meðal annars Kareem Abdul-Jabbar, sexfaldan NBA-meistara, sexfaldan besta leikmann deildarinnar og stigahæsta leikmann NBA fyrr og síðar. Þeir eru einmitt fyrrum liðsfélagar. Pétur var varamaður Kareem Abdul-Jabbar hjá Los Angeles Lakers tímabilið 1985 til 1986. Abdul-Jabbar valdi hann þá meðal annars besta varamiðherja NBA-deildarinnar í blaðaviðtali. Abdul-Jabbar var þarna 38 ára gamall en Pétur 27 ára. Abdul-Jabbar var með 23,4 stig, 6,1 frákast og 3,5 stoðsendingar að meðaltali á 33,3 mínútum í leik þetta tímabil en Pétur var með 7,3 stig og 4,8 fráköst að meðaltali á 16,0 mínútum í leik. Pétur kom inn í byrjunarlið Lakers í tveimur leikjum þegar Abdul-Jabbar glímdi við meiðsli og var með 11,5 stig og 7,0 fráköst að meðalali á 26,0 mínútum í þeim. Pétur spilað alls 150 deildarleiki á öllum NBA-ferli sínum og hann var að auki með samtals 14 leiki í úrslitakeppni NBA.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Leik lokið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Enski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira