Íslenski boltinn

Valur og KR mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ásdís Karen var í byrjunarliði Vals í dag.
Ásdís Karen var í byrjunarliði Vals í dag. mynd/valur
KR og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu í kvennaflokki en þetta varð ljóst eftir leiki dagsins þar sem bæði þessi lið unnu nauma 1-0 sigra.

Fyrr í dag vann KR 1-0 sigur á HK/Víking í Egilshöllinni en eina mark leiksins skoraði Margrét María Hólmarsdóttir á 60. mínútu.

Þá vann Valur 1-0 sigur á Fylki í seinni leik kvöldsins en Hlín Eiríksdóttir skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu.

Úrslitaleikurinn fer fram þann 22. febrúar næstkomandi í Egilshöllinni.

Upplýsingar um markaskorara koma frá Fotbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×