Lífið

Super bowl-auglýsingarnar: Hörð ádeila, grín og tilfinningasemi ræður ríkjum í ár

Birgir Olgeirsson skrifar

Úrslitaleikur NFL-deildarinnar um Ofurskálina svokölluð hefst seint í kvöld en það er ekki aðeins íþróttin sem dregur áhorfendur að leiknum heldur bíða margir spenntir eftir tónleikunum í hálfleik og síðast en ekki síst auglýsingunum sem geta verið nokkuð hjartnæmar og ansi skemmtilegar.

Nú þegar hafa þó nokkrar auglýsingar verið birtar á YouTube sem verða sýndar í kringum leikinn og verður farið yfir nokkrar þeirra hér að neðan.

Budweiser

Þegar kemur að hjartnæmum auglýsingum er fyrst til sögunnar auglýsing frá bjórframleiðandanum Budweiser en þar má sjá hvernig fyrirtækið kom vatni til svæða í Bandaríkjunum sem urðu illa úti vegna náttúruhamfara.

Á meðan má heyra Skylar Grey syngja sína útgáfu af Stand By Me sem Ben E. King gerði ódauðlegt. Samkvæmt Budweiser hefur fyrirtækið flutt 79 milljónir dósa af vatni til þeirra sem verða fyrir náttúruhamförum frá árinu 1988, þar á meðal tvær milljónir dósa á síðastliðnum tveimur árum.

Stella Artois

Bjórframleiðandinn Stella Artois fékk síðan leikarann Matt Damon til liðs viðs sig til að kynna samstarf framleiðandans við góðgerðasamtök um að verða íbúum vanþróaðra ríkja úti um hreint vatn.

Peta

Ein af auglýsingunum sem mun vafalaust vekja mikla athygli er auglýsing frá dýraverndarsamtökunum Peta með leikaranum James Cromwell í aðalhlutverki. Cromwell hlaut Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir hlutverk sitt í myndinni Babe sem kom út árið 1995. Í auglýsingunni má sjá kjötframleiðanda mæta til játningar í kirkju þar sem hann segir frá myrkum leyndarmálum fyrirtækis síns. 

Pringles

Kartöfluflöguframleiðandinn fékk gamanleikarann Bill Hader til að segja „vá“ ítrekað á meðan hann kemst að því að hann getur skapað nýtt bragð með því að raða saman Pringles-flögum.

M&M

Sælgætisframleiðandinn er með auglýsingu sem skartar Danny Devito í aðalhlutverki. Þar má sjá M&M-karakterinn Red breytast í Danny Devito með aðstoð lukkupenings. Í auglýsingunni útskýrir Danny Devito að það hafi verið auðvelt fyrir sig að bregða sér í hlutverk Red því hann sé svolítið líkur honum, en í betra formi.

Michelob Ultra

Ein af fyndnari auglýsingunum þetta árið er frá bjórframleiðandanum Michelob Ultra. Þar gerir leikarinn Chris Pratt stólpagrín að sjálfum sér. Pratt er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Peter Quill, eða Starlord, í Marvel-myndunum Guardians of the Galaxy. Pratt komst í fréttirnar þegar hann kom sér í virkilega gott form fyrir myndirnar eftir að hafa verið í yfirvigt.

Í þessari auglýsingu segist hann hafa landað stóru hlutverki í Michelob Ultra og tekur undirbúninginn afar alvarlega.



Hann kemst síðar að því að hann er bara aukaleikari og er útkoman stórskemmtileg:

Universal Studios

NFL-hetjan Payton Manning var fenginn til að auglýsa skemmtigarða Unversal Studios.

Amazon

Amazon auglýsir streymisveitu sína í kringum Ofurskálina og þar á meðal þættina Tom Clancy´s Jack Ryan með John Krasinski í aðalhlutverki.

Doritos og Mountain Dew

Leikararnir Peter Dinklage og Morgan Freeman mæma lög eftir Busta Rhymes og Missy Elliot í þessari Doritos og Mountain Dew-auglýsingu.

Febreze

Þessi lyktarframleiðandi ákvað að taka klósetthúmorinn alla leið í þessari auglýsingu.

Avacados from Mexico

Þessi auglýsing er með þeim furðulegri.

Squarespace

Squarespace fékk leikarann Keanu Reeves til að standa á mótorhjóli til að auglýsa sína vöru.

Pepsi

Pepsi reynir að draga kynslóðirnar saman í ár með því að rifja upp allar þær stjörnur sem hafa auglýst Pepsi í gegnum árin.

Coca-Cola

Coca-Cola gerir út á sinni auglýsingu að Coke sé fyrir alla.

KIA

Kia fékk söngvarann Steven Tyler til að bakka Kia-bíl aftur í tímann.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.