Dómararnir trúðu því ekki að boltinn hefði farið í körfuna | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2018 20:30 Manu Ginóbili reyndi að sannfæra dómarana um að "skotið“ hans hefði í raun farið í körfuna. Vísir/Getty
Manu Ginóbili er leikmaður San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta og Argentínumaðurinn snjalli hefur skorað ófáar þriggja stiga körfur á ferli sínum. Sú sem hann skoraði í nótt er þó örugglega sú óvenjulegasta. Manu Ginóbili var að spila með San Antonio Spurs í Madison Square Garden í New York en þetta var hans 1024. leikur í NBA á ferlinum. Karfan sem Ginóbili skoraði í nótt kom svo á óvart að allir þrír dómarar leiksins tóku ekki eftir því að boltinn fór í körfuna. Engin stig fóru því upp á töflu til að byrja með.Manu's shot was so incredible, the ref's didn't believe it went in pic.twitter.com/iuQtSYVa7D — SportsCenter (@SportsCenter) January 3, 2018 Dómarar leiksins voru reyndar ekki þeir einu því Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, viðurkenndi eftir leikinn að hann missti líka af þessu. Manu Ginóbili ætlaði að reyna að háa sendingu á LaMarcus Aldridge inn í teig en hún „mistókst“ svo illa að boltinn fór þess í stað beina leið í körfuna. Leikmenn mótherjanna í New York Knicks létu eins og um tapaðan bolta væri að ræða og brunuðu í sókn. Dómararnir gerðu engar athugasemdir fyrr en Ginóbili grátbað þá um að skoða þetta betur sem þeir og gerðu. Manu Ginóbili fékk því á endanum stigin sín þrjú upp á töflu en hann endaði með tvær þriggja stiga körfur og tólf stig í 100-91 sigri.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Í beinni: KA - HK | Hve kröftug er bikarþynnkan? Íslenski boltinn Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira