Real mistókst að saxa á Börsunga og er titilvörnin nánast úr sögunni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ronaldo sækir á vörnina í kvöld.
Ronaldo sækir á vörnina í kvöld. vísir/getty
Real Madrid mistókst að nýta sér leik sem þeir áttu inni til að saxa á forskot Börsunga á toppi deildarinnar en Celta Vigo náði að krækja í stig í 2-2 jafntefli í kvöld.

Daniel Wass kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en Gareth Bale minnti á sig og svaraði með tveimur mörkum fyrir lok hálfleiksins.

Leiddi Real Madrid í hálfleik og bjargaði Keylor Navas liðsfélögum sínum þegar hann varði vítaspyrnu Iago Aspas í upphafi seinni hálfleiks en það reyndist ekki nóg.

Wass var aftur á ferðinni þegar hann lagði upp jöfnunarmark Maximiliano Gomez á 82. mínútu. Reyndist það síðasta mark leiksins og skyldu liðin því jöfn.

eftir leikinn er Real Madrid í 4. sæti með 32 stig, 16 stigum á eftir Barcelona en á leik til góða en það verður að teljast nánast ómögulegt að þeir verji titilinn

Celta Vigo fagnar stiginu enda að reyna að lyfta sér frá fallsæti í deildinni en Celta er í 14. sæti með 22 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira