Lífið

Birta opinberar trúlofunarmyndir sínar

Atli Ísleifsson skrifar
Ástfangið par.
Ástfangið par. Kensington House.
Harry Bretaprins og leikkonan Meghan Markle birtu í dag opinberar trúlofunarmyndir sínar en þau tilkynntu um trúlofun sína í síðasta mánuði. Áætlað er að þau gangi í það heilaga í Kapellu heilags Georgs við Windsorkastala þann 19. maí næstkomandi.

Ljósmyndarinn Alexi Lubomirski tók myndirnar en annars vegar er um að ræða bæði svarthvítar myndir og í lit þar sem þau eru við Fragmore House.

Þau Harry og Meghan trúlofuðust í London í byrjun nóvember en þau hafa þekkst síðan í júní 2016. Þau munu búa í Nottingham Cottage í Kensington-höll.

Markle er 36 ára gömul og hefur meðal annars komið fram í þáttunum Suits og Fringe.


Tengdar fréttir

Hver er Meghan Markle?

Harry Bretaprins og Meghan Markle munu ganga í hjónaband næsta vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.