Lífið samstarf

Listin getur veitt öruggari leið

Jóhanna Lind Jónsdóttir, ráðgjafi og listmeðferðafræðingur hjá Stígamótum.
Jóhanna Lind Jónsdóttir, ráðgjafi og listmeðferðafræðingur hjá Stígamótum. MYND/ANTON BRINK
Stígamót kynnir: Listmeðferð er meðferðarform þar sem notast er við listsköpun, ásamt samtalsmeðferð, við úrvinnslu áfalla eða erfiðrar reynslu. Listsköpunin getur veitt fólki tækifæri til að tjá sig með öðrum hætti en með orðum og því gefið aðra og dýpri innsýn í tilfinningalíf viðkomandi á þann hátt sem samtal getur ekki veitt, að sögn Jóhönnu Lindar Jónsdóttur, sem starfar sem ráðgjafi og listmeðferðarfræðingur hjá Stígamótum.

Greiðari leið

Hún segir listmeðferð geta gagnast fólki sem lent hefur í kynferðislegu ofbeldi. Yfirleitt sé mjög erfitt að ræða ofbeldið og afleiðingar þess en listin geti veitt öruggari leið sem er fjarlægari einstaklingnum heldur en ef hann segi frá í fyrstu persónu.

„Minningar og hugsanir sem tengjast ofbeldinu geta oft á tíðum verið svo yfirþyrmandi að einstaklingurinn lokar á þær. Þegar kemur að úrvinnslu getur verið erfitt að opna aftur á slíkan sársauka. Listsköpun getur veitt greiðari leið fyrir viðkomandi að slíkum minningum og hugsunum heldur en ef um samtal væri að ræða. Einnig getur listmeðferð veitt annars konar aðgang að lokuðum minningum þar sem unnið er í efnivið sem örvar skynfæri, t.d. með lykt, áferð og hljóðum.“

Samband myndað

Einstaklingur sem á erfitt með að tjá sig á hefðbundinn hátt getur þannig nýtt sér listmeðferð til tjáningar á erfiðum og sársaukafullum upplifunum, líkt og kynferðisofbeldi er, segir Jóhanna.

„Það fellur þá í hlut listmeðferðarfræðingsins að mynda samband við manneskjuna og veita henni öruggt rými til að opna á viðkomandi áföll og lífsreynslu. Um leið er mikilvægt að hafa í huga að ekki þarf þekkingu á listsköpun eða einhverja sérstaka hæfileika á því sviði til að nýta sér listmeðferð.“

Þakklát tækifærinu

Jóhanna útskrifaðist úr uppeldis- og menntunarfræði og sálfræði frá Háskóla Íslands eftir að hafa lokið fornámi í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Þaðan lá leið hennar til New York þar sem hún lærði listmeðferð í NYU háskólanum.

„Eftir meistaranámið starfaði ég úti með einhverfum börnum í tæp tvö ár og síðan á Stuðlum eftir að ég kom heim. Ég er ótrúlega þakklát Stígamótum fyrir að gefa mér tækifæri til að starfa á þessum vettvangi með fullorðnum einstaklingum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.