Arsenal tapaði í Köln en vann samt riðilinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. nóvember 2017 19:45 NIðurlútið Arsenal-menn í kvöld. vísir/getty Arsenal hefur ekki átt mikilli velgengni að fagna í Evrópuleikjum í Þýskalandi undanfarin misseri og það breyttist ekkert í kvöld. Skytturnar töpuðu fjórða leiknum í röð á þýskri grundu, nú gegn botnliði þýsku 1. deildarinnar, Köln, 1-0, í H-riðli Evrópudeildarinnar. Eina mark leiksins skoraði Frakkinn Sehrou Guirassy úr vítaspyrnu á 62. mínútu sem var frekar umdeild. Guirassy fór niður í teignum í baráttu við Mathieu Debuchy en vítið var frekar mjúkt. Frakkinn var öruggur á punktinum og skoraði það sem svo reyndist vera sigurmarkið í leiknum. Skytturnar komu boltanum ekki í netið þrátt fyrir stórsókn undir lokin. Þrátt fyrir tapið vann Arsenal H-riðilinn þar sem Rauða stjarnan og BATE Borisov gerðu markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins. Arsenal erm eð tíu stig og næstu lið sex þegar að ein umferð er eftir. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn