Lífið

Fengu sér allar fjórar sama húðflúrið

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Nína í stólnum, Anna Katrín, Glódís Tara og Halla standa hjá.
Nína í stólnum, Anna Katrín, Glódís Tara og Halla standa hjá. Visir/Stefán
Ljósaganga UN Women fer fram í dag, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi ásamt öðrum félagasamtökum hér á landi eru í forsvari fyrir. Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er: Höfum hátt. Þær Anna Katrín Snorradóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jónsdóttir og Nína Rún Bergsdóttir leiða gönguna og flytja hugvekju. Þær eiga það sameiginlegt að Robert Downey braut á þeim í æsku. Þær hittust í fyrsta skipti í vikunni allar saman en það hafa þær ekki gert hingað til því Nína Rún býr í Bandaríkjunum.



I am the storm, þetta flúr bera þær nú allar fjórar. Fréttablaðið/Stefán


Blaðamaður hitti þær á Bleksmiðjunni, húðflúrstofu þangað sem þær voru komnar til að fá sér allar sama húðflúrið: Setninguna „I am the storm.“ Setningin lýsir baráttukrafti þeirra.

„Við hittumst bara áðan, fyrir um tveimur tímum,“ segir Nína Rún og segir það hafa verið góða og tilfinningaþrungna stund. „Það er góð tilfinning, við erum allar tengdar órjúfanlegum böndum,“ segir Anna Katrín.





Allar saman í fyrsta sinn. Þær fjórar leiða gönguna í ár. Fréttablaðið/Stefán
Þær fjórar vilja leggja áherslu á mikilvægi þess að berjast gegn óréttlæti og mun Nína flytja hugvekju fyrir þeirra hönd. Gangan hefst klukkan 17.00 á Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnarsonar og verður gengið upp Amtmannsstíg að Bríetartorgi. Harpa verður lýst upp í appelsínugulum lit, sem er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.