Fiat atvinnubílasýning og tvöföld frumsýning Finnur Thorlacius skrifar 17. nóvember 2017 13:00 Fiat Doblo Maxi.
Íslensk-Bandaríska efnir til Fiat atvinnubíla sýningar föstudaginn 17. og laugardaginn 18. nóvember. Sýndir verða Fiat Doblo, Fiat Doblo Maxi og Fiat Duacto auk þess frumsýndir verða Fiat Fiorino sendibíll og Fiat Talento Combi 9 manna fólksbíl. Fiat Fiorino er lipur og nettur sendibíll sem hentar einstaklega vel við þröngar aðstæður t.d. í akstur og afhendingar í miðbænum. Fiorino státar af 556 kg burðargetu og 2,5m3 flutningsrými. Hann er fáanlegur með 1400cc, 78 hestafla bensínvél og kostar frá 1.927.419 án vsk, eða 2.390.000 kr. m/vsk. Fiat Doblo er traustur og sterkbyggður sendibíll, sem státar af stærsta flutningsrými og mestu burðargetu í sínum stærðarflokki eða 3,4m3 og allt að 1.000 kg burðargetu (Doblo Maxi). Fiat Doblo kostar frá 2.411.290 kr. án vsk. eða 2.990.000 kr. með vsk. Fiat Ducato er einn mest seldi sendibíllinn í Evrópu í sínum stærðarflokki. Vel á þriðju milljón eintaka hafa verið seld og er hann til í fjölmörgum útfærslum og er með einstaklega sparneytnar, en öflugar vélar. Ducato kostar frá 3.862.903 kr. án vsk eða 4.185.484 kr. Fiat Talento Combi er rúmgóður, rúmur og lipur 9 manna bíll, með miklu farangursrými. Tilvalinn fyrir bílaleigur eða í leigubílaaksturinn. Talento Combi kostar 4.508.065 kr. án vsk. Allir nýjir Fiat atvinnubílar með 5 ára ábyrgð. Sýningin er opin föstudag frá kl. 10-18 og laugardag á milli kl. 12-16 og er í sýningarsal Ís-Band að Þverholti 6, Mosfellsbæ.
Mest lesið Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Átti ekki von á að ríkisstjórnin myndi halda kjöri Innlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Innlent Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Innlent Falla frá bröttum gjaldskrárhækkunum eftir ábendingar foreldra Innlent Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Innlent Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Erlent