Rauði herinn fór í gang í seinni hálfleik | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Liverpool situr áfram á toppi E-riðils Meistaradeildar Evrópu eftir 3-0 sigur á Maribor á Anfield í kvöld.

Liverpool vann fyrri leikinn í Slóveníu 0-7 en Rauði herinn var lengi í gang í kvöld og bauð ekki upp á neinn glansfótbolta í fyrri hálfleik.

Staðan var markalaus í hálfleik en í seinni hálfleik gaf Liverpool í, skoraði þrjú mörk og tryggði sér sigurinn.

Mohamed Salah kom heimamönnum yfir á 49. mínútu og á þeirri 64. skoraði Emre Can annað mark Liverpool. Í millitíðinni varði Jasmin Handanovic vítaspyrnu frá James Milner.

Daniel Sturridge kom inn á sem varamaður á 74. mínútu og á lokamínútunni bætti hann þriðja markinu við. Lokatölur 3-0, Liverpool í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira