Lífið

Steindi nær óþekkjanlegur í tökum af Steypustöðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr tökunum í gær.
Úr tökunum í gær. vísir/Eyþór
Nú standa yfir tökur á annarri þáttaröð af Steypustöðinni sem fer í loftið á Stöð 2 á næsta ári.

Í gær fóru fram tökur en fyrir þær þurfti Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., að fara í smink í fjórar klukkustundir.

Steindi er nánast óþekkjanlegur eins og sjá má meðfylgjandi myndum en Eyþór Árnason, ljósmyndari 365 var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.

Þetta verður væntanlega skrautlegur karakter.
Hvernig ætli þessi köttur tengist málinu?
Þetta virðist vera nokkuð sérstakur starfsmaður hjá Póstinum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.