Lífið

Áslaug Arna stal lúkkinu af Sigríði Maríu: „Nei hættu!“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Báðar eru þær stórglæsilegar.
Báðar eru þær stórglæsilegar.
Nú eru aðeins átta dagar til kosninga og eru flokkarnir allir í miklum kosningarham. Auglýsingar setja ávallt sterkan svip á kosningarbaráttuna og sér landinn fátt annað en slíkar auglýsingar í sjónvarpinu, á internetinu og í dagblöðum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er til að mynda stórglæsileg í nýrri auglýsingu frá Sjálfstæðisflokknum en þar má sjá hana í ljósbrúnum frakka og svartri rúllukragapeysu.

Katrín Sigríður Júlíu-Steingrímsdóttir, framhaldsskólanemi, skipar 9. sæti í Reykjavík-Suður fyrir Viðreisn. Hún vakti athygli á því á Twitter að útlit Áslaugar væri aftur á móti nokkuð kunnuglegt en Sigríður María Egilsdóttir var nákvæmlega eins klædd í auglýsingu Viðreisnar fyrir síðustu Alþingiskosningar.

Áslaug Arna tjáði sig um málið á samfélagsmiðlinum og sagði einfaldlega; „Nei hættu!“ 

Hér að neðan má sjá umræðuna á Twitter og auglýsingarnar báðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.