Börsungar gerðu engin mistök í Baskalandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi er kominn með 12 mörk í spænsku úrvalsdeildinni.
Lionel Messi er kominn með 12 mörk í spænsku úrvalsdeildinni. Vísir/Getty
Barcelona er áfram með fjögurra stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 0-2 sigur á Athletic Bilbao í kvöld.

Lionel Messi hefur verið óstöðvandi í byrjun tímabils og hann var á skotskónum í dag.

Messi kom Barcelona yfir á 36. mínútu með sínu tólfta deildarmarki í vetur.

Paulinho gulltryggði svo sigur Börsunga þegar hann fylgdi eftir skoti frá Luis Suárez sem Kepa Arrizabalaga varði. Lokatölur 0-2, Barcelona í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira