Ótrúleg markahrina Real Madrid á enda Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. september 2017 21:45 Cristiano Ronaldo svekktur í leiknum í kvöld. vísir/getty Cristiano Ronaldo snéri aftur í lið Real Madrid í kvöld eftir leikbann en það breytti engu því liðið tapaði, 0-1, á heimavelli fyrir Real Betis. Sigurmark Betis kom í uppbótartíma er Madrid var komið með alla sína menn í sókn. Markið skoraði Antonio Sanabria. Real var búið að skora mark í 73 leikjum í röð fyrir kvöldið og ótrúlegri markahrinu liðsins þar með lokið. Síðast skoraði liðið ekki í apríl á síðasta ári er það gerði markalaust jafntefli við Man. City. Það er reyndar með ólíkindum að Real hafi ekki skorað í leiknum. Liðið átti 25 skot að marki og fékk fjölda fínna færa. Madridingar hafa farið hörmulega af stað í deildinni. Eru búnir að vinna tvo leiki, gera tvö jafntefli og tapa einum leik. Real er því sjö stigum á eftir toppliði Barcelona. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti