Engin Wembley-vandræði hjá Tottenham | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2017 20:30 Harry Kane skoraði tvívegis þegar Tottenham vann 3-1 sigur á Borussia Dortmund í H-riðli. Góð byrjun hjá Tottenham sem hefur átt í miklum vandræðum á Wembley eins og frægt er orðið. Son Heung-Min kom Spurs yfir eftir aðeins fjórar mínútur en Andriy Yarmalenko jafnaði metin með fallegu marki á 11. mínútu. Tveimur mínútum síðar kom Kane Tottenham í 2-1 sem voru hálfleikstölur. Kane skoraði svo sitt annað mark á 60. mínútu. Skömmu áður hafði mark verið ranglega dæmt af Pierre-Emerick Aubameyang, framherja Dortmund. Jan Vertoghen var rekinn af velli í uppbótartíma en það breytti engu um úrslitin. Lokatölur 3-1, Tottenham í vil. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti