Bílar

BL innkallar 269 Hyundai Santa Fe

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai Santa Fe.
Hyundai Santa Fe.
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á 269 Hyundai bifreiðum. Um er að ræða Santa Fe bifreiðar framleiddar á árnunum 2012-2016. Ástæða innköllunarinnar er sú að á sumum bílum virkar neyðarhúddlás illa vegna stirðleika í vír sem gæti orsakað að hann virki ekki sem skildi ef bíll er keyrður með opið húdd. 

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar á næstu dögum. Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL. 






×