Drusluvaktin María Bjarnadóttir skrifar 21. júlí 2017 06:00 Það eru rúmlega 70 ár síðan íslensk stjórnvöld starfræktu sérstaka lögreglueiningu sem hafði eftirlit með saurlífi og lauslæti kvenna. Lögreglan hélt skrár og skýrslur um konur og sumar þeirra voru hreinlega lokaðar inni til þess að hemja þær í drusluganginum. Í nútíma jafnréttisparadísinni þykir okkur þessi fortíð fjarlæg. En þó að lögreglan sé ekki lengur á drusluvaktinni þá er vaktin ennþá furðuvel mönnuð leikum og lærðum sem skella skuldinni af kynferðisofbeldi á þær sem fyrir því verða. Of full í stuttu pilsi niðrí bæ? Sendi nektarmyndir af sér? Að sjálfsögðu verður ráðist að kynfrelsi þeirra. Að sjálfsögðu dreifa menn nektarmyndum áfram í heimildarleysi. Eða hvað? Drusluvaktin hefur látið á sjá eftir árhundraða árásir femínista, súffragetta, jafnréttissinna, druslugöngufólks og hvað svo sem svoleiðis fólk kallar sig. Þetta hefur valdið síversnandi starfsskilyrðum á vaktinni og þverrandi virðingu fyrir störfum hennar. Stofnanir sem áður var hægt að treysta á í varðstöðunni gegn druslugangi kvenna hafa farið að gefa eftir. Breska stofnunin Internet Watch Foundation réðst nýlega í herferð til þess að koma í veg fyrir að ungir menn dreifi nektarmyndum af öðrum heimildarlaust. Herferðin er studd af lögreglu, stjórnvöldum og tæknifyrirtækjum. Eins og konum sé bara frjálst að senda af sér nektarmyndir án afleiðinga! Það er sótt að drusluvaktinni úr öllum áttum. Það er hægt að taka þátt í aðförinni með því að ganga Druslugönguna í Reykjavík 29. júlí nk. Og með því að sleppa því að áframsenda nektarmyndir. Til dæmis. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein María Bjarnadóttir Mest lesið Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun Hugleiðing á konudag Sigurður Ingi Arnars Unuson Skoðun Viðbrögð barna við sorg Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Áfram kennarar! Kristbjörg Þórisdóttir,Bragi Reynir Sæmundsson Skoðun Áslaug Arna er leiðtoginn sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf Hafrún Kristjánsdóttir Skoðun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun Stétt með stétt? Helgi Áss Grétarsson Skoðun Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir Skoðun Landshornalýðurinn á Hálsunum Hákon Gunnarsson Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun