Tónlist

Neðanjarðarsenan tekin fyrir í tónleikaröð

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þórður Ingi Jónsson, eða Lord Pusswhip, heldur Stage Dive Fest til að koma ungum og efnilegum tónlistarmönnum á framfæri.
Þórður Ingi Jónsson, eða Lord Pusswhip, heldur Stage Dive Fest til að koma ungum og efnilegum tónlistarmönnum á framfæri. Vísir/Eyþór
Stage Dive Fest er tónleikaröð sem er haldin á Húrra nú í fimmta sinn, og tilgangurinn er að styðja við unga tónlistarmenn í neðanjarðarsenunni í Reykjavík, helst í rapp- og raftónlist þó það sé ekki krafa,“ segir Þórður Ingi Jónsson, eða Lord Pusswhip, einn aðstandandi Stage Dive Fest sem eins og hann segir er nú haldin í fimmta sinn á skemmtistaðnum Húrra. Með honum eru það þeir Mælginn og Bngrboy sem sjá um að halda viðburðinn.

Þetta kvöld kemur Lord Pusswhip fram sjálfur ásamt Countess Malaise en þau hafa verið að sjóða saman görótta hiphop-blöndu upp á síðkastið. Í febrúar á þessu ári gaf Lord Pusswhip út mixteipið Lord Puss­whip is Dead þar sem hann gerir upp feril sinn síðustu fimm árin. Countess Malaise er listamannsnafn Dýrfinnu Benita en hún hefur verið nokkuð iðin við kolann á árinu og gaf meðal annars út lagið Skip a Case.

Ásamt Malaise og Pusswhip spilar Kuldaboli mínímalíska syntha­tóna sem gætu kveikt vetrarfíling í brjósti gesta svona í miðjum júní, Andsetinn kemur fram – drungalegur neðanjarðarrappari og m e g e n, elektrónískt dúó sem er nýkomið af Secret Solstice hátíðinni og má alveg gera ráð fyrir því að þeir verði alveg funheitir og snúi tökkunum af mikilli lipurð. Leikar hefjast klukkan átta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.