Tónlist

Aflýsa tónleikum vegna veikinda Jökuls

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jökull á sviði með Kaleo fyrr á árinu.
Jökull á sviði með Kaleo fyrr á árinu. vísir/getty
Hljómsveitin Kaleo hefur aflýst átta tónleikum sem fara áttu fram í sumar víðs vegar um heiminn vegna veikinda Jökuls Júlíussonar, söngvara sveitarinnar.

Þá er búið að fresta þremur tónleikum til viðbótar en þetta er gert samkvæmt læknisráði og til að minnka álag en á Facebook-síðu hljómsveitarinnar segir að greining læknisins á veikindum Jökuls hafi verið ófyrirséð.

Tónleikarnir sem sveitin hefur aflýst áttu að fara fram á tímabilinu 28. júní til 20. ágúst, meðal annars á tónlistarhátíðinni Rock Werchter í Hollandi,í Orlando í Bandaríkjunum, í París í Frakklandi og í Tókýó í Japan.



Álag og streita vegna stanslausra tónleikaferðalaga líklega ástæða veikindanna

„Það sem ég get sagt er að ég hef það gott,“ segir Jökull í samtali við Vísi aðspurður um veikindi  sín.

Hann kveðst hafa verið í rannsóknum hjá lækni en að líklega megi rekja þetta til álags og streitu vegna stanslausra tónleikaferðalaga undanfarin ár.

„Við höfum verið að spila um 300 daga á ári síðustu ár og því lítill tími til að hvílast,“ segir Jökull.

Hljómsveitin mun spila eins mikið og mögulegt er í sumar.

„Svo erum við með okkar „Kaleo Express“-túr í haust um allan heim svo það er nóg framundan. Ég er líka á fullu að einbeita mér að því að klára nýja tónlist fyrir næstu plötu. Svo gefst vonandi tækifæri til að koma eitthvað meira heim til Íslands í sumar og hlaða batteríin,“ segir Jökull.

Kaleo nýtur mikilla vinsælda um allan heim og plata þeirra A/B hefur selst afar vel. Þeir komu meðal annars fram á Coachella-tónlistarhátíðinni í Kaliforníu í apríl og þá voru þeir valdir besta nýja rokkhljómsveitin síðasta árs af Billboard.

Uppfært klukkan 19:40.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.