Lífið

Fólkið á Solstice: Rífa sig úr rekkju óháð timburmönnum til að sjá Ísland

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Parið Tanya og Craig er frá Kanada og er annað árið í röð mætt á Secret Solstice.

„Við elskum tónlistina, að vera á öðruvísi stöðum, hitta nýtt fólk og komast út fyrir bæinn,“ segja þau. Ísland sé frábært land.

Þau eru miklir tónlistaraðdáendur og reglulegir tónleikagestir. „Við elskum að það eru sveitir frá stöðum þaðan sem við heyrum ekki oft tónlist,“ segir Tanya og nefnir Ísland sem dæmi. Efst á listanum fyrir helgina eru Foo Figheres, Prodigy og Richard Ashcroft.

Eins og svo margir var öl við höndina en þau ætla samt að rísa úr rekkju að morgni hvers dags og nýta tímann til að sjá landið. Þau eru ekki alveg samstíga í svari sínu um hvort það verði ekki erfitt en segjast öllu vön.

„Við erum frá Kanada. Þetta verður ekkert mál.“

Þeim finnst Secret Solstice flott hátíð miðað við aðrar sem þau hafa sótt og ódýr. „Miðinn myndi kosta tvisvar sinnum meira í Kanada,“ segir Craig.

Á morgun kemur vinkona þeirra frá Noregi til móts við þau en hana hittu þau á hátíðinni í fyrra. Þá segjast þau vera í góðu sambandi við fleira fólk sem þau hafi kynnst á Solstice.

Viðtalið við þau Tanyu og Craig má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.