Tónlist

Kim Jong Un í aðalhlutverki í nýju myndbandi XXX Rottweiler

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ein vinsælasta rappsveit sögunnar hér landi með nýtt myndband.
Ein vinsælasta rappsveit sögunnar hér landi með nýtt myndband.
Rappsveitin XXX Rotweiler frumsýnir í dag nýtt lag og myndband á Vísi en lagið ber nafnið Kim Jong-Un.

Ágúst Bent og Lúðvík Páll Lúðvíksson leikstýra myndbandinu en báðir eru þeir meðlimir í XXX.

Þessi margreynda rappsveit hefur engu gleymt og er myndbandið hið glæsilegasta eins og sjá má neðst í fréttinni.

„Það er tonn að gerast hjá okkur í sumar, erum að spila á afmælishátíð Frón á Selfossi á sunnudaginn, eini staðurinn á suðurlandi sem við höfum ekki spilað á, svo opnum við fyrir Prodigy á Secret Solstice,“ segir Erpur Eyvindarson.

En hvað kemur Kim Jong Un laginu við?

„Það er ótrúlega mikið af notalegri, þægilegri tónlist í gangi en málið er að xxx Rottweiler er ekki sá tebolli. Tímar breytast og tónlist með, en Rottweiler eru samt alltaf snargeðveika atriðið með pung í yfirvigt sem hangir út. Og það er það sem Kim Jong Un er líka, alveg sturlaður með punginn úti að segja öllum að fokka sér.“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.