Bílar

Nýkrýndur Þýskalandsmeistari og landsliðskona gerir samstarfssamning við HEKLU

Finnur Thorlacius skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Wolfsburg spilar ávallt með Volkswagen merkið framan á búningnum.
Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Wolfsburg spilar ávallt með Volkswagen merkið framan á búningnum.
Hinn árlegi Volkswagen dagur verður haldinn með pompi og prakt í HEKLU Laugavegi 174 og á sama tíma hjá Bílasölu Selfoss, Höldi Akureyri, Bílás Akranesi og HEKLU Reykjanesbæ. Veislan stendur frá klukkan 12.00 til 16.00 og skærasta stjarna Volkswagen; Volkswagen Golf verður frumsýndur ásamt Volkswagen Bjöllu Dune, sem er uppfærð útgáfa af Bjöllunni vinsælu.

Sara Björk Gunnarsdóttir, tvöfaldur Þýskalandsmeistari og landsliðskona í knattspyrnu, mætir til HEKLU kl. 12:00 og undirritar samstarfssamning við félagið. Sara Björk æfir nú með landsliðinu fyrir hörkuspennandi leik við Brasilíu á Laugardalsvelli en mætir á Volkswagen daginn, áritar myndir og spjallar við gesti og gangandi. 

Á boðstólum verður svellkaldur ís frá Valdís, rjúkandi heitt kaffi frá Kaffitár, ásamt svaladrykkjum.






×