Tónlist

Andri frumsýnir nýtt myndband: Án rappsins væri ég allt annar maður

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fínasta lag frá Andra.
Fínasta lag frá Andra.
Rapparinn Andri Freyr Alfreðsson frumsýnir nýtt myndband í dag en það er við lagið Hver sem þú ert. Lagið kemur út í samstarfi við söngkonuna Evu Lind.

Myndbandið og lagið fjallar um fortíð Andra sem hefur greinilega gengið í gegnum margt.

„Myndbandið á eiginlega að endurspegla mína fortíð og er svolítið um það hvernig rapp og tónlist hafði jákvæð áhrif á lífið mitt og án þess væri ég allt annar maður,“ segir Andri Freyr.

Hér að neðan má sjá myndbandið með við lagið.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.