Kaliforníulöggan á 730 hestafla Mustang Saleen Finnur Thorlacius skrifar 15. maí 2017 09:43 Ford Mustang Saleen S302 bíllinn er sannkölluð skruggukerra.
Það slá fá lögregluembætti við Dubai lögreglunni sem hefur í sinni þjónustu mikið safn öflugra sportbíla, en þó finnast önnur lögregluembætti sem skarta mjög öflugum bílum. Riverside lögreglan í Kaliforníu í Bandaríkjunum fékk um daginn afhentan 730 hestafla Ford Mustang sem breytt hefur verið af Saleen breytingafyrirtækinu. Nokkur hefð er fyrir því að lögreglan í Bandaríkjunum séu með 8 strokka bíla í sinni þjónustu og fyrir 30 árum voru mörg lögregluembætti með Ford Fox Body Mustang með 5,0 lítra 8 strokka vélar sem þó skiluðu ekki nema 225 hestöflum, sem þótti ágætt á þeim tíma. Riverside lögreglan í Kaliforníu er nú talsvert betur vopnuð með meira en þrefalt afl í sínum nýja Saleen Mustang. Þessi bíll er í grunninn Mustang GT með 435 hestöfl en í meðförum Saleen hafa bæst við næstum 300 hestöfl og hann togar 600 pund-fet. Bílar með þessháttar breytingu bera nafnið Saleen S302.
Mest lesið „Þetta snýst ekki um einhvern helvítis flugvöll“ Innlent Formlegar viðræður hafnar Innlent Framsókn hafi ekki átt annarra kosta völ Innlent Var vel meðvitaður um ákvörðun Einars Innlent Vísa alfarið á Einar sem hafi fullt umboð Innlent Landsréttur skipar Héraðsdómi að taka Kiðjabergsmálið til meðferðar Innlent Ekkert breyst nema fylgi flokkanna Innlent Skýr afstaða Framsóknar hafi komið á óvart Innlent Meirihlutinn fallinn í borginni Innlent Segir galið að byggja íbúðir svo nálægt flugbrautum Innlent