Lífið

Falleg íslensk heimili: Hið sveigða form fær að njóta sín í húsi Manfreðs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Smekkleg eign.
Smekkleg eign.
Í síðasta þætti af Fallegum íslenskum heimilum var farið í Barðavoginn. Í Barðavoginum í vogahverfinu er fallegt hús sem teiknað er af Manfreð Vilhjálmssyni. Það er teiknað árið 1967 sem heimili og vinnustofa listmálarans Kristjáns Davíðssonar en í dag býr sonur hans og fjölskylda í húsinu. Það var byggt á árunum 1967-70.

Grunnhugmyndin á bakvið þetta hús er hið sveigða form. Inni í húsinu eru stórir gluggar þar sem Manfreð vildi vinna í mikilli birtu.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.