Lífið

Háværar samfarir trufluðu tennisleik

Samúel Karl Ólason skrifar
Frances Tiafoe hlustar af ákafa.
Frances Tiafoe hlustar af ákafa.
Tennisköppum og áhorfendum brá heldur í brún í Sarasota í Flórída á dögunum. Þá ómuðu háværar stunur yfir tennisvelli þar sem þeir Frances Tiafoe og Mitchell Krueger öttu kappi.

Í fyrstu hélt lýsandi viðreignarinnar að einhver í áhorfendapöllunum hefði verið að horfa á klám í síma sínum, en í ljós kom að óhljóðin komu úr nærliggjandi íbúð.

Tiafoe var að fara að gefa á Krueger þegar hljóðin heyrðust fyrst og stöðvaði hann leikinn um stund með bros á vör. Áhorfendur hlógu og leikurinn hélt áfram.

Hins vegar heyrðust hljóðin aftur skömmu seinna og gargaði Tiafoe þá: „Þetta getur ekki verið svona gott!“ við mikinn fögnuð áhorfenda.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.