Jaguar XF langbakur á leiðinni Finnur Thorlacius skrifar 26. apríl 2017 10:34 Jaguar XF Sportbrake.
Jaguar er að fjölga í framleiðslulínu sinni og ætlar að bjóða XF bíl sinn í langbaksútfærslu og hyggst bjóða hann á flestum mörkuðum, meðal annars í Bandaríkjunum þar sem er mikill markaður fyrir bíla með mikið flutningsrými. Þessum bíl verður att gegn bílum eins og Mercedes E-Class langbaknum, BMW 5-línu langbaknum, Audi A4 Allroad og Volvo V60 og V90. Jaguar segir að engu sé fórnað með þessari útfærslu bílsins, sem fær aukanafnið Sportbrake. Hann hafi sömu góðu aksturseigileikana og í hefðbundnum XF í sedan-útfærslu. Bíllinn fær sömu vélar og í þeim hefðbundna, fjögurra strokka dísilvél og V6 bensínvél með keflablásara. Ef eitthvað er á þessi bíll að vera ennþá fríðari sínum en sedan-útfærslan með hallandi afturlínu og því í ætt við Shooting Brake línu Mercedes Benz og fleiri slíkra bíla. Það færir honum sportlegt yfirbragð og tilfinningu fyrir hraða. Hann verði samt miklu notadrýgri bíll með allt sitt flutningsrými. Það er spurning hvort að þessi útfærsla XF bílsins rati brátt að ströndum Íslands, en BL hefur hafið innflutning og sölu á Jaguar bílum fyrir skömmu. Þessi bíll bætist í flóru rúmgóðra bíla Jaguar eins og F-Pace jeppans sem nú þegar hefur fengið góðaar viðtökur um heim allan, meðal annars á Íslandi.
Mest lesið „Þetta snýst ekki um einhvern helvítis flugvöll“ Innlent Formlegar viðræður hafnar Innlent Framsókn hafi ekki átt annarra kosta völ Innlent Var vel meðvitaður um ákvörðun Einars Innlent Vísa alfarið á Einar sem hafi fullt umboð Innlent Ekkert breyst nema fylgi flokkanna Innlent Skýr afstaða Framsóknar hafi komið á óvart Innlent Meirihlutinn fallinn í borginni Innlent Hefur boðið nýjum meirihluta til viðræðna Innlent Jóhann Páll gengur í stað Ölmu Innlent