Boston og Washington komin áfram en Clippers knúði fram oddaleik | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. apríl 2017 10:49 John Wall var svona ánægður eftir að Washington vann Atlanta. vísir/afp
Boston Celtics og Washington Wizards tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Það þarf hins vegar oddaleik til að knýja fram úrslit í rimmu Utah Jazz og Los Angeles Clippers. Boston vann öruggan sigur á Chicago Bulls, 83-105, í sjötta leik liðanna. Chicago vann fyrstu tvo leikina í einvíginu en Boston kom til baka, vann fjóra leiki í röð og tryggði sér sæti í undanúrslitunum þar sem liðið mætir Washington. Avery Bradley skoraði 23 stig fyrir Boston og Gerald Green sextán. Jimmy Butler skoraði 23 stig fyrir Chicago en Dwayne Wade fann sig engan veginn og skoraði einungis tvö stig. John Wall fór hamförum þegar Washington bar sigurorð af Atlanta Hawks, 99-115. Washington vann einvígið 4-2. Wall skoraði 42 stig, gaf átta stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum. Bradley Beal átti einnig góðan leik og skoraði 31 stig. Paul Millsap var atkvæðamestur í liði Atlanta með 31 stig, 10 fráköst, sjö stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Clippers tryggði sér oddaleik gegn Utah með fimm stiga sigri, 93-98, í sjötta leik liðanna. Chris Paul fór fyrir sínum mönnum í Clippers og skoraði 29 stig og gaf átta stoðsendingar. DeAndre Jordan skoraði 13 stig og tók 18 fráköst. Gordon Hayward skoraði 31 stig fyrir Utah og Gordon Hill 22 stig. Oddaleikur Clippers og Utah fer fram í Staples Center í Los Angeles annað kvöld.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira