Tónlist

Nýjasta myndband Emmsjé Gauta í anda Fast and the Furious

Stefán Árni Pálsson skrifar
Herra Hnetusmjör og Gauti fara á kostum í myndbandinu.
Herra Hnetusmjör og Gauti fara á kostum í myndbandinu.

Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, var rétt í þessu að gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið Þetta má.

Myndbandið er sannarlega af dýrari gerðinni og keyrir Gauti um á rándýrum bílum í því. Herra Hnetusmjör er einnig með Emmsjé Gauta í laginu sem er af plötunni Sautjándi nóvember.

Myndbandið er í einskonar The Fast and the Furious stíl en áttunda myndin var einmitt tekinn upp hér á landi á dögunum.

Það var Þorsteinn Magnússon sem leikstýrði myndbandinu og sá Magnús Atli Magnússon um myndatökuna.

Klippa: Emmsjé Gauti - Þetta má ft. Herra Hnetusmjör





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.