Lífið

Sendiráð Íslands í Bretlandi fékk ananas-pizzur sendar frá leyndum aðdáanda

Birgir Olgeirsson skrifar
"Lengi lifi ananas-pizzan“ segir sá sem sendi starfsfólki íslenska sendiráðsins í Bretlandi þessar pizzur.
"Lengi lifi ananas-pizzan“ segir sá sem sendi starfsfólki íslenska sendiráðsins í Bretlandi þessar pizzur. Twitter.

Sendiráð Íslands í Bretlandi fékk heldur betur óvæntan glaðning í dag en um var að ræða þrjár Havaí-pizzur. Líkt og heiti þeirra gefur til kynna voru þær með skinku og að sjálfsögðu ananas en þeir sem hafa fylgst með fréttum undanfarna daga er vafalaust meðvitaðir um að ummæli forseta Íslands um ananas á pizzur hafa ratað í stærstu fjölmiðla heimsins.

Guðni Th. Jóhannesson svaraði spurningu nemanda við Menntaskólann á Akureyri á þá leið að fengi hann einhverju um það ráðið myndi hann banna ananas á pizzur. Þetta var vitanlega allt sagt í góðu gríni en hefur vakið heimsathygli í kjölfarið og margir haft gaman að.

Þá sérstaklega þessi óþekkti aðdáandi Havaí-pizzunnar í London sem sendi starfsfólki íslenska sendiráðsins þrjár slíkar og ritaði á kassann: „Long live the pineapple pizza“ eða „Lengi lifi ananas-pizzan“.

Í svari frá sendiráði Íslands í Bretlandi kemur fram að starfsemi sendiráðsins hafi haldist nokkuð eðlileg þrátt fyrir pizzumálið, fyrir utan þessi óvæntu sendingu.

„Augljóslega eru skiptar skoðanir um hvað eigi að setja ofan á pizzur en það verður að teljast mjög ólíklegt að starfsmenn sendiráðsins myndu panta ávöxt á pizzu,“ segir í svarinu.

Guðni Th. sendi frá sér yfirlýsingu vegna stóra pizzu-málsins á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann tók fram að hann geti ekki sett lög sem banna fólki að setja ananas á pizzuna sína og að honum þætti ekki gott að hafa slík völd því forsetar eiga ekki að vera alráðir að hans mati.

„Ég myndi ekki vilja gegna þessa embætti ef ég gæti sett lög sem bönnuðu það sem mér mislíkar. Ég myndi ekki vilja búa í þannig landi,“ sagði forsetinn en hann áréttaði þetta einnig á ensku enda má ætla að honum hafi borist fjölda fyrirspurna frá fjölmiðlum ytra miðað við áhugann.

Greint er einmitt frá því á vef Ríkisútvarpsins í dag embætti forseta hafi borist fjöldi slíkra fyrirspurna og sagði Örnólfur Thorlacius forsetaritari að skiptar skoðanir séu á orðum forsetans en flestir viti nú að hann hafi verið að gera að gamni sínu með þessum ummælum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.