Westbrook með 29. þrennuna en Boogie fékk 18. tæknivilluna | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. febrúar 2017 07:30
Oklahoma City Thunder vann í nótt átta stiga sigur á New Orleans Pelicans í NBA-deildinni í körfubolta, 118-110, á heimavelli sínum. Russell Westbrook fór hamförum enn eina ferðina og nældi sér í 29. þrennuna á tímabilinu með 41 stigi, ellefu fráköstum og ellefu stoðsendingum. New Orleans er nú búið að tapa öllum þremur leikjum sínum eftir að liðið fékk til sín einn hæfileikaríkasta stóra mann deildarinnar, DeMarcus „Boogie“ Cousins, en hann spilaði samt ótrúlega vel í nótt og skoraði 31 stig og tók tíu fráköst og aðeins 21 mínútu. Á meðan Westbrook er búinn að gera það að listgrein að næla sér í þrennur er Cousins með svarta beltið í tæknivillum enda frekar tæpur leikmaður. Hann fékk eina slíka í nótt sem var hans 18. á tímabilinu og á hann því yfir höfði sér enn eitt leikbannið. Cousins kláraði ekki leikinn því hann fékk sína sjöttu villu þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Hann braut þá á Russell Westbrook er leikstjórnandinn ótrúlegi gerði sér lítið fyrir og tróð yfir stóra manninn með látum. Algjörlega geggjuð tilþrif hjá Westbrook. Cousins fékk tæknivillu og tvær hefðbundnar villur á fyrstu 95 sekúndunum sem hann spilaði en þar sem hann er búinn að fá svo margar tæknivillur á tímabilinu fer hann sjálfkrafa í bann ef hún verður ekki tekin til baka. Anthony Davis skoraði 38 stig, tók sjö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Pelicans en stóru mennirnir skoruðu því í heildina 69 stig af 110 stigum New Orleans. „Við erum að læra að spila saman,“ sagði Cousins við fréttamenn eftir leik.Úrslit næturinnar: LA Lakers - San Antonio Spurs 98-119 Milwaukee Bucks - Phoenix Suns 100-96 Denver Nuggets - Memphis Grizzlies 98-105 Washington Wizards - Utah Jazz 92-102 Toronto Raptors - Portland Trail Blazers 112-106 Detroit Pistons - Boston Celtics 98-104 OKC Thunder - New Orleans Pelicans 118-110 LA Clippers - Charlotte Hornets 124-121
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira