Tónlist

Universal tryggir sér réttinn á óutgefnu efni Prince

Anton Egilsson skrifar
Óútgefið efni frá Prince mun líta dagsins ljós í náinni framtíð.
Óútgefið efni frá Prince mun líta dagsins ljós í náinni framtíð. Vísir/Getty
Universal Music Group hefur tryggt sér réttinn til að gefa út óútgefið efni bandaríska tónlistarmannsins Prince. Sky greinir frá þessu.

Ekki liggur fyrir um hve mikið af efni sé að ræða en ljóst er aðdáendur poppgoðsins geta beðið spenntir. Reiknað er með að það sé töluvert magn enda var Prince þekktur fyrir að vera mjög afkastamikill lagahöfundur.

Prince féll frá í apríl á síðasta ári en dánarorsök hans var of stór lyfjaskammtur. Prince hafði unnið í 154 klukkutíma samfleytt án þess að sofa dagana áður en hann fannst látinn í lyftu á heimili sínu, Paisley Park í Minnesota.

Prince var margverðlaunaður tónlistarmaður. Þekktasta verk hans er án efa Purple Rain sem kom út árið 1984 ásamt samnefndri mynd. Prince hlaut Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína í myndinni auk þess sem titillag plötunnar var útnefnt besta lag níunda áratugarins af tónlistarvefnum Pitchfork. Á um 40 ára ferli seldi Prince yfir 100 milljón plötur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.