Tónlist

Dabbi T frumsýnir nýtt myndband á Vísi: „Skellti mér í fremur hallærislegan skíðagalla“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í dag gefur rapparinn Dabbi T út stuttskífuna T. Skífan inniheldur lögin King, Glanni og Hún vol. 2. Í leiðinni kemur út tónlistarmyndband við lagið King sem Vísir frumsýnir.

Á síðasta ári, níu árum eftir útgáfu „cult” plötunnar Óheflað málfar, ákvað Dabbi T að taka hljóðnemann af hillunni og gaf út lagið Blár. Viðtökurnar við laginu, ásamt djörfu myndbandi, létu ekki á sér standa og því hefur hann ákveðið að fylgja endurkomunni eftir með útgáfu stuttskífunnar.

„Skífan fer allan skalann. Glanni er uppgjör við kvennamál fortíðarinnar, Hún vol. 2 fjallar um stelpu sem skildi mig eftir í reyk, á meðan King mærir og upphefur mig,“ segir Davíð Tómas Tómasson, betur þekktur sem Dabbi T.

Myndbandið við lagið King er leikstýrst af Brynjari Birgissyni og fetar það ótroðnar slóðir í íslenskri rappsögu þar sem það er tekið upp í Bláfjöllum með skíða þema.

„Í myndböndum við svona lög eru menn yfirleitt umkringdir bikíní gellum á B5. En ég vildi gera eitthvað öðruvísi og skellti mér í fremur hallærislegan skíðagalla og dembdi mér í brekkurnar. Með því vildu ég og Brynjar breyta út af vananum og reyna að snúa þema lagsins á haus.”

Hér að ofan má sjá útkomuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.