Bíó og sjónvarp

Hjartasteinn með sextán tilnefningar

Birgir Olgeirsson skrifar
Nýr verðlaunagripur var kynntur til leiks
Nýr verðlaunagripur var kynntur til leiks Vísir/Stefán
Tilkynnt verður um tilnefningar til Eddunnar 2017, uppskeruhátíðar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, á blaðamannafundi í Bíó Paradís klukkan 13 í dag.

Þá verður einnig frumsýnd nýja Eddu verðlaunastyttan ásamt því að nýr flokkur, Sjónvarpsefni ársins, verður kynntur en í þeim flokki verður kosið meðal almennings.

Blaðamaður Vísis er í Bíó Paradís og mun hann greina frá öllu því markverðasta, um leið og það gerist, hér að neðan.



Á vef Eddunnar segir að frestur til að skila inn verkum í Edduna hafi runnið út í byrjun janúar og að þegar upp var staðið höfðu framleiðendur sent alls 92 verk inn í keppnina. Að auki voru nöfn 178 einstaklinga, sem unnu við öll þessi kvikmynda- og sjónvarpsverk, send inn í fagverðlaun Eddunnar.

Gjaldgeng voru verk sem voru frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2016 til 31. desember 2016.

„Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 57 talsins sem er aðeins minna en síðustu ár. Innsendar kvikmyndir eru sjö og sjö stuttmyndir eru sendar inn. Innsendum verkum í flokkinn Heimildamyndir voru 19.

Fjórar forvalsnefndir hafa verið að störfum við að horfa á öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd verða í öllum 25 verðlaunaflokkum Eddunnar. Kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka hefst 3. febrúar og stendur í rúmar tvær vikur,“ segir á vef Eddunnar.

Úrslit kosningarinnar verða svo tilkynnt á Edduhátíðinni 2017 sem að þessu sinni verður haldin sunnudaginn 26. febrúar á hótel Hilton Reykjavík Nordica.

Uppfært klukkan 13:50

Hjartasteinn fékk sextán tilnefningar til Eddunnar en útlistun tilnefninga í öllum flokkum má sjá hér.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.