Dramatískur sigur Cleveland í framlengingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. febrúar 2017 08:00 LeBron James í leiknum í nótt. Vísir/AP
Cleveland Cavaliers vann nauman sigur á Washington Wizards, 140-135, í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt. LeBron James klúðraði galopnu skoti þegar lítið var eftir af leiknum sem kom Cleveland í erfiða stöðu. En hann bætti upp fyrir það þegar hann setti niður erfiða þriggja stiga körfu þegar 0,3 sekúndur voru eftir og tryggði Cleveland framlengingu. James gat ekki klárað framlenginguna út af villuvandræðum en þá tók Kyrie Irving yfir. Hann skoraði ellefu stig í framlengingunni og setti niður þriggja stiga körfu á lokamínútunni sem tryggði Cleveland sigurinn. Kevin Love var stigahæstur hjá Cleveland með 39 stig en hann var þar að auki með tólf fráköst. James var með 32 stig og sautján stoðsendingar, sem er persónulegt met hjá honum. Irving endaði með 23 stig. Washington hafði unnið sautján heimaleiki í röð fyrir nóttina en stigahæstur í liðinu var Bradley Beal með 41 stig. Miami vann Minnesota, 115-113, og þar með sinn ellefta sigur í röð. Goran Dragic skoraði 33 stig, þar af 21 fyrir utan þriggja stiga línuna. Minnesota hefur nú tapað fjórum leikjum í röð. Indiana vann Oklahoma City, 93-90, þar sem Russell Westbrook vantaði bara eina stoðsendingu upp á til að ná sinni 26. þreföldu tvennu á tímabilinu. Hann endaði með 27 stig, átján fráköst og níu stoðsendingar.Úrslit næturinnar: New York - Lakers 107-121 Washington - Cleveland 135-140 Indiana - Oklahoma City 93-90 Toronto - Clippers 118-109 Atlanta - Utah 95-120 Detroit - Philadelphia 113-96 New Orleans - Phoenix 111-106 Minnesota - Miami 113-115 Denver - Dallas 110-87 Memphis - San Antonio 89-74 Sacramento - Chicago 107-112
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira