Mynd af nýjum McLaren 720S lak út Finnur Thorlacius skrifar 7. febrúar 2017 10:30 McLaren 720S kemst aðeins úr sporunum.
McLaren hefur að undanförnu verið að sýna McLaren bíleigendum sína nýjustu afurð, McLaren 720S, sem leysa mun af hólmi McLaren 670S. Svo virðist sem að einn gestanna hafi ekki staðist mátíð og smellt af bílnum mynd, vafalaust í mikilli óþökk McLaren manna. Myndina birti hann síðan á Instagram síðu sinni og fer hún nú um netheima á ógnarhraða, en er eins og sést ekki í hárri upplausn. Eins og vanalega bendir nafn bílsins til þess hve öflugur hann er, eða 720 hestöfl. Það átti líka við 650S og 670S bílana. Aflið kemur frá 3,8 lítra V8 vél með tveimur forþjöppum. Talsvert mikil breyting er á ytra útliti bílsins frá 670S bílnum. Framljósin eru ekki lengur í laginu eins og bjúgverpill (boomerang) og þaklínan er afar blöðrulaga og minnir á Pagani bíla. McLaren ætlaði fyrst að sýna 720S bílinn á bílasýningunni í Genf í mars komandi og væntanlega hefur alls ekki staðið til að gestir þar gengju að því vísu hvernig bíllinn lítur út fyrirfram.
Mest lesið Jóhann Páll gengur í stað Ölmu Innlent Hjálmar segist ekki skilja hvað Einar eigi við Innlent „Maður veltir fyrir sér hver er að búa til svona sögur“ Innlent Myrti sjö konur og þrjá karla Erlent Segja stefnt að því að fækka starfsmönnum úr 10.000 í 300 Erlent Verða ekki krafin um endurgreiðslu Innlent Sjónvarpskokkur ásakaður um áralanga óviðeigandi hegðun Erlent Kóngurinn ógangfær eftir að eldingum laust niður í hann Innlent Sagði upp hjá DOGE vegna rasískra ummæla Erlent Fær bætur vegna árásar grunnskólanema eftir allt saman Innlent