Paul George bjó til svissneskt veggspjald úr Clint Capela með tröllatroðslu Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. janúar 2017 20:30
Indiana Pacers vann öruggan sigur á Houston Rockets í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 120-101 en sigurinn var aldrei í hættu eftir að heimamenn voru þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 33-20. Paul George, ofurstjarna Indiana-liðsins og þess langbesti maður, átti stórleik eins og svo oft áður en hann skoraði 33 stig, tók níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann átti líka tilþrif leiksins þegar hann tróð með látum yfir svissneska miðherjann Clint Capela þegar sex mínútur voru eftir af þriðja leikhluta en hann kom þá sínum mönnum í 65-53. George var með Trevor Ariza, bakvörð Houston, á móti sér en hann fíflaði Ariza upp úr skónum og negldi svo boltanum ofan í körfuna með hinn 22 ára gamla og 208 cm háa Capela í andlitinu á sér. Capela þarna settur á svissneskt veggspjald og það með látum en troðsluna má sjá í spilaranum hér að ofan.
NBA Tengdar fréttir Enn ein þrenna Westbrook dugði ekki til sigurs Golden State lagði Portland Trail Blazers þrátt fyrir að vera án Steph Curry. 30. janúar 2017 07:30 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira
Enn ein þrenna Westbrook dugði ekki til sigurs Golden State lagði Portland Trail Blazers þrátt fyrir að vera án Steph Curry. 30. janúar 2017 07:30