Harden og Wall bestir í NBA í síðustu viku ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 21:01 James Harden og John Wall. Vísir/Samsett frá Getty
James Harden hjá Houston Rockets og John Wall hjá Washington Wizards voru valdir bestu leikmenn NBA-deildarinnar í síðustu viku ársins eða frá 26. desember 2016 til og með 1. janúar 2017. Harden var bestur í Vesturdeildinni en Wall í Austurdeildinni.James Harden og félagar í Houston Rockets unnu alla fjóra leiki sína í vikunni. Harden var með 37,3 stig, 12,5 stoðsendingar og 9,8 fráköst að meðaltali í leik í þessum fjórum leikjum. Hann hitti úr 56 prósent skota sinna utan af velli og setti niður 89 prósent víta sinna. Harden var með yfir 30 stig og 10 stoðsendingar í öllum fjórum leikjunum en hann endaði vikuna á tveimur þrennum í röð. Fyrst var hann með 30 stig, 13 fráköst, 10 stoðsendingar og 5 stolna bolta í 140-116 sigri Houston á Los Angeles Clippers og svo var hann daginn eftir með 53 stig, 17 stoðsendingar, 16 fráköst og 9 þriggja stiga körfur í 129-122 sigri á New York Knicks. Þetta er í þriðja sinn á þessu tímabili og í tólfta sinn á ferlinum sem Harden er valinn besti leikmaður vikunnar í NBA. Harden var á móti New York Knicks á Gamlársdag fyrsti leikmaðurinn til að vera með 50 stig, 15 stoðsendingar og 15 fráköst í einum leik og hann jafnaði þá líka met Wilt Chamberlain frá 1968 yfir flest stig í þrennu.Wall og félagar í unnu alla þrjá leiki sína í vikunni. Wall var með 24,3 stig, 13,0 stoðsendingar, 5,3 fráköst og 2,67 stolna bolta að meðaltali í leik. Hann var með 18 stig og 16 stoðsendingar í sigri á Milwaukee Bucks og var einnig með 36 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar í sigri á Indiana Pacers.Aðrir sem komu til greina sem leikmenn vikunnar voru eftirtaldir: Isaiah Thomas hjá Boston, Nikola Jokic hjá Denver, DeAndre Jordan hjá Clippers, Giannis Antetokounmpo hjá Milwaukee, Anthony Davis hjá New Orleans, Joel Embiid hjá Philadelphia, C.J. McCollum hjá Portland og DeMarcus Cousins hjá Sacramento.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira