Tíunda þrefalda tvennan hjá Harden Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2017 07:30 Harden í leiknum í nótt. Vísir/AP
James Harden fór hamförum þegar Houston Rockets vann Toronto Raptors, 129-122, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Harden skoraði 40 stig í leiknum, gaf ellefu stoðsendingar og tók tíu fráköst og náði þar með sinni tíundu þreföldu tvennu á tímabilinu. Í raun var hann með fjórfalda tvennu þar sem hann tapaði boltanum tíu sinnum í leiknum. Enginn leikmaður hefur verið með aðra eins tölfræði síðan að tapaðir boltar voru teknir inn í tölfræðisamantekt deildarinnar haustið 1977. Toronto leiddi í upphafi fjórða leikhluta, 99-95, en Houston skoraði þá fimmtán stig í röð og leit aldrei um öxl eftir það. DeMar DeRozan skoraði 36 stig í leiknum en þetta var í átjánda sinn sem hann skorar minnst 30 stig í leik. Það er persónulegt met hjá honum. Cleveland vann Phoenix, 120-116, þar sem LeBron James skoraði 28 stig, þar af tólf í fjórða leikhluta er Cleveland náði að síga fram úr. Kyrie Irving skoraði 27 stig fyrir Cleveland og Kevin Love 25. Mestu munaði um tvær þriggja stiga körfur hjá James þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Golden State vann Sacramento, 117-106. Stephen Curry skoraði 30 stig og Kevin Durant 28 auk þess sem hann tók sjö fráköst, gaf sex stoðsendingar og varði fjóra bolta.Úrslit næturinnar: Brooklyn - Philadelphia 95-105 Milwaukee - Washington 101-107 LA Clippers - Miami 98-86 Toronto - Houston 122-129 Memphis - Utah 88-79 Phoenix - Cleveland 116-120 Portland - Detroit 124-125 Sacramento - Golden State 106-117 LA Lakers - Orlando 111-95
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira