Lífið

Gaman að auka þekkinguna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Jóhanna Sigurlaug Eirí­ksdóttir varð fyrst kvenna til að ljúka námi sem Marel-vinnslutæknir.
Jóhanna Sigurlaug Eirí­ksdóttir varð fyrst kvenna til að ljúka námi sem Marel-vinnslutæknir.
 „Vinnslutækninámið gaf mér innsýn inn í tækni og hugbúnað Marels og gerir mér auðveldara fyrir að greina bilanir, skipta um varahluti og vera í tengslum við Marel.

Þetta þýðir vonandi að ekki þarf sækja alla þjónustu suður, heldur get ég bjargað einhverju hér heima við,“ segir Jóhanna Sigurlaug Eiríksdóttir á Sauðárkróki sem nýlega útskrifaðist úr Fisktækniskóla Íslands sem Marel-vinnslutæknir.



Hún er fyrsta konan til að ljúka því námi.  



„Það er gaman að auka þekkinguna enda var staðið vel að kennslunni,“ segir hún.

Jóhanna hefur unnið í Fisk-Seafood á Sauðárkróki í tvö ár.

„Ég byrjaði bara á línunni og í ýmsum störfum. Svo fór ég í nám og útskrifaðist sem fisktæknir frá Fjölbraut á Sauðárkróki í vor því ég varð að vera búin með það eða sambærilegt nám til að reyna við vinnslutækninn.“

Nú var hún dálítið á ferðinni. „Fisktækniskóli Íslands er með aðsetur í Grindavík og við nemendurnir vorum þar á köflum, en líka í Marel í Garðabæ og í Sjávarklasanum á Granda í Reykjavík. Námið fór fram í lotum, bæði heima við tölvuna og með verklegum æfingum, auk þess sem farið var í vinnustaðaheimsóknir,“ lýsir hún.

Hún kveðst hafa lært á sérstakt hugbúnaðarkerfi Marels, Innova, sem notað sé í flestum fiskvinnslustöðvum en líka í kjötvinnslu og kjúklingalínum hér á landi og víða um heim. „Við lærðum inn á M3000 haus sem er master á ýmsum búnaði.“

 Í Fisk Seafood er aðallega unnið í þorski og ufsa að sögn Jóhönnu. „Aðalbátarnir eru tveir, Málmey og Klakkur,“ segir hún. „Það eru ísfiskbátar sem eru svona viku úti í einu.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. desember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.